Skoðun

Fjöl­skyldu­líf á eigin á­byrgð

Svanfríður Bergvinsdóttir og Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifa

Þingsályktunartillaga um brúun umönnunarbilsins er tækifæri til að tryggja ungum fjölskyldum öryggi

Ungt fólk á Íslandi er ítrekað að fá þau skilaboð að þau eigi að eignast fleiri börn. Við eigum að stofna fjölskyldur, byggja upp samfélagið og taka þátt í atvinnulífinu. En þegar kemur að því að láta þetta fara saman blasir við veruleiki sem ætti ekki að vera til staðar í nútímasamfélagi: að loknu fæðingarorlofi tekur við óvissa.

Fær barnið pláss á leikskóla? Hvenær? Hvað á ég að gera til þess að brúa bilið?

Umönnunarbilið er ekki einkamál einstakra fjölskyldna. Það er kerfisvandi sem hefur áhrif á lífskjör, atvinnuþátttöku og jafnrétti. Þegar samfelldur stuðningur við barnafjölskyldur er ekki tryggður er foreldrum ætlað að leysa vandann sjálfum. Þetta hefur orðið til þess að barneignir eru munaðarvara, ekki sjálfsögð framvinda lífsins. Og síðan er spurt hvers vegna ungt fólk fresti barneignum eða eignist færri börn.

Möguleikar foreldra til að brúa bilið eru ólíkir. Ekki allir foreldrar geta unnið heiman frá sér, breytt vöktum eða treyst á aðstandendur til að annast barnið á vinnutíma. Sá sem hefur ekki svigrúm til að vera launalaus mánuðum saman stendur frammi fyrir töluvert öðrum veruleika en sá sem getur keypt sér lausn. Umönnunarbilið er því líka stéttarmál.

Frá óvissu til réttinda

Fyrir liggur þingsályktunartillaga um lögfestingu leikskólastigsins og brúun umönnunarbilsins. Stjórn ASÍ-UNG styður tillöguna og hvetur Alþingi til að samþykkja hana. Tillagan byggir á niðurstöðum aðgerðarhóps um brúun umönnunarbilsins sem skilaði skýrslu í desember 2025. Í hópnum sátu fulltrúar ráðuneyta, Sambands íslenskra sveitarfélaga, ASÍ, BHM, BSRB, Kennarasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Vinnan sjálf á rætur í yfirlýsingu stjórnvalda og sveitarfélaga í tengslum við kjarasamninga árið 2024.

Tillagan er mikilvægt skref í rétta átt en hún má ekki verða enn eitt plaggið sem safnar ryki í skúffum stjórnsýslunnar. Nú þarf að klára verkefnið.

Leikskólinn er talinn vera fyrsta leikskólastigið á Íslandi en samt er ekki tryggður almennur, einstaklingsbundinn réttur barna til leikskólavistar frá ákveðnum aldri. Við teljum sjálfsagt að börn komist inn í grunnskóla við á 6 aldursári og við teljum sjálfsagt að börn hafi rétt á framhaldsskólamenntun, en fyrsta skólastigið byggir þó enn á getu og fjárhag sveitarfélaga hverju sinni. Það teljum við vera tímaskekkju.

Börn eiga aldrei að vera aukaatriði í þessari umræðu. Leikskólinn hefur sjálfstætt gildi sem vettvangur leiks, náms og félagslegra tengsla. Réttur barna til leikskólavistar og möguleikar foreldra til þess að komast aftur út á atvinnumarkaðinn eiga ekki að ráðast af póstnúmerinu sem þú búa í, og réttur barns til að njóta starfsins á ekki að ráðast af fjárhag foreldra eða hversu auðvelt þau eiga með að útvega aðra umönnun.

Foreldrar eiga sömuleiðis ekki að þurfa að skipuleggja barneignir eftir inntökudagatali leikskóla. Þar sem inntaka barna fer oft fram að hausti getur munað mörgum mánuðum á bið barna eftir því hvenær árs þau fæðast. Fæðingarmánuður barns á ekki að ráða því hversu lengi fjölskyldan þarf að komast af með skertar tekjur.

Kerfisvandi verður að tekjumissi

Verkalýðshreyfingin hefur lengi bent á að leikskólakerfið sé ekki aðeins menntamál heldur einnig stórt vinnumarkaðsmál. Fyrir þúsundir fjölskyldna er leikskólinn forsenda þess að foreldrar geti unnið, stundað nám eða byggt upp starfsferil sinn. Þegar pláss vantar eða opnunartími stenst ekki þarfir vinnumarkaðarins lendir kostnaðurinn á fjölskyldum.

Það er staðreynd að byrðin af umönnunarbilinu lendir ekki jafnt á foreldrum. Þegar leikskólapláss eru af skornum skammti eru það gjarnan mæður sem fresta endurkomu á vinnumarkað, lækka starfshlutfall sitt eða taka launalaust leyfi til að brúa bilið. Þannig verður til óleystur kerfisvandi tekjumissis og skertra starfstækifæra kvenna. Brúun umönnunarbilsins er því líka brýnt kvenréttindamál.

Við megum ekki gleyma því hvers vegna leikskólarnir voru stofnaðir til þess að byrja með, en það var til þess að gefa konum jafnt færi og körlum á vinnumarkaði og er ein mikilvægasta jafnréttisumbót síðustu áratuga. Leikskólarnir voru byggðir upp í gegnum áratugalanga baráttu fyrir betri lífskjörum, auknum réttindum og sterkari velferðarkerfum. Þeir eru hluti af þeirri samfélagssýn að börn eigi rétt á góðu uppeldi og menntun, samhliða raunverulegu frelsi foreldra til þess að taka þátt á vinnumarkaði.

Áhyggjur af stöðu leikskólanna eru ekki bara áhyggjur af þjónustu við börn heldur áhyggjur af framtíð velferðarsamfélagsins sjálfs.

Lausnin má ekki lenda á fjölskyldunum

ASÍ hefur ítrekað bent á að lausnin við mönnunarvanda leikskólanna geti ekki verið sú að færa kostnaðinn yfir á foreldra eða stytta dvöl barna. Slíkar aðgerðir leysa ekki undirliggjandi vanda. Til þess þarf fjárfestingu, skýra stefnu og aukna virðingu fyrir mikilvægu starfi leikskólafólks.

Ef við ætlum að tryggja öllum börnum rétt til leikskólavistar þá þurfum við jafnframt að tryggja að þar sé nægt starfsfólk, að starfsaðstæður séu góðar og að fólk sjái sér framtíð í faginu.

Góðar starfsaðstæður í leikskólum og örugg þjónusta við barnafjölskyldur verða að fara saman. Foreldrar og starfsfólk eiga ekki að þurfa að bera kostnaðinn af því að stjórnsýslan tryggi ekki nægar forsendur fyrir starfseminni. Lausnin verður að felast í því að styrkja leikskólana svo þeir geti sinnt bæði menntunarhlutverki sínu og þörfum fjölskyldna.

Samfélagið verður að standa við sitt

Ungt fólk þarf að geta treyst því að samfélagið standi við sinn hluta samningsins.

Við stöndum þegar frammi fyrir háum húsnæðis- og framfærslukostnaði. Við það má ekki bætast óvissa um hvort við getum snúið aftur til vinnu þegar fæðingarorlofi lýkur. Að eignast barn á ekki að þýða að þurfa að velja á milli þess að sinna umönnun þess og að geta séð fjölskyldunni farboða.

Þingsályktunartillagan er mikilvægt skref í átt að því öryggi sem barnafjölskyldur þurfa. Stjórn ASÍ-UNG hvetur Alþingi til að samþykkja hana og stjórnvöld til að fylgja henni eftir með lagasetningu, fjármagni og uppbyggingu. Leikskóli fyrir öll börn að loknu fæðingarorlofi verður að verða tryggður réttur í framkvæmd.

Ungt fólk á ekki að þurfa að velja á milli þess að eignast börn og hafa efni á að ala þau upp.

Höfundar eru Svanfríður Bergvinsdóttir, formaður ASÍ-UNG, og Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir, varaformaður ASÍ-UNG.




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×