Umferðaröryggi
1 2 3 4 5 6 … 37 ›
Strætó fór útaf á Holtavörðuheiði Strætisvagn fór út af veginum á Holtavörðuheiði á sjöunda tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Húnar á Hvammstanga, Blanda á Blönduósi og Heiðar í Borgarfirði voru kallaðar út til aðstoða um fimmtán manns sem voru í vagninum. Innlent 26.2.2026 23:09
Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Bílar í hið minnsta fimm ökumanna urðu fyrir miklu tjóni vegna snjóruðningstækis sem ók í gagnstæða átt við þá á Hafnarfjarðarvegi um kvöldmatarleytið í gær. Vegagerðin segir að málið verði kannað til hlýtar. Innlent 26.2.2026 12:02
Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Vegfarandi segir glæfralegan akstur ökumanns snjóruðningstækis hafa valdið skemmdum á bíl hans á Hafnarfjarðarvegi. Mikil hætta hafi verið á ferðum og hann verið viss um að framrúðan myndi springa. Þá hafi fleiri ökumenn greint frá tjóni. Innlent 26.2.2026 00:07
Vara við krefjandi aðstæðum á höfuðborgarsvæðinu Vegagerðin varar við snjókomu á suðvesturhorninu á morgun með krefjandi aksturskilyrðum, meðal annars í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins. Innlent 24.2.2026 16:05
Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Systur voru á ferð yfir Klettsháls á Vestfjörðum þegar bíllinn valt af veginum og þær enduðu á hlið. Bíllinn eyðilagðist en þær sluppu með minni háttar meiðsl. Eftir slysið voru þær fastar í bílnum en náðu ekki að hringja í neyðarlínuna vegna lélegs símsambands. Innlent 21.2.2026 21:16
Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Ökumanni brá heldur betur í brún þegar hann ætlaði að taka fram úr á vinstri akrein tvöfaldaðs Vesturlandsvegar við Grundarhverfi og bíll kom á móti honum á röngum vegarhelmingi. Innlent 21.2.2026 11:16
Leita vitna að atviki í Bolungarvíkurgöngum Lögreglan á Vestfjörðum óskar eftir upplýsingum frá vitnum um ferðir ökumanns sem ók í gegnum Bolungarvíkurgögn. Lögreglan vill ná tali af umræddum ökumanni. Innlent 20.2.2026 14:50
Annar bíll mögulega í „samfloti“ þegar banaslysið varð Vísbendingar eru um að annar bíll hafi verið í samfloti við þann sem hafnaði á stólpa með þeim afleiðingum að sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut í byrjun mánaðar. Rannsókn beinist meðal annars að því hvort að hraðakstur hafi átt þátt í slysinu. Innlent 17.2.2026 12:42
Umferð akandi, hjólreiðar fólki, rafhlaupahjolafolki og gangandi vegfarendur Góðan daginn. Ég er atvinnubílstjóri og er búinn að starfa sem slíkur í 25 ár og hef orðið vitni af fólki sem stjórnar ökutækjum af hvaða toga sem er. Skoðun 16.2.2026 09:02
Vegkaflinn þar sem banaslysið varð ekki talinn mjög illa farinn Vegkaflinn þar sem banaslys varð á Miklubraut á dögunum er ekki á forgangslista Vegagerðarinnar yfir vegaframkvæmdir. Vegagerðin segir það ekki munu koma í ljós fyrr en skýrsla Rannsóknarnefndar samgönguslysa liggur fyrir hvort ástand vegarins hafi átt þátt í slysinu. Innlent 12.2.2026 06:59
Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Stofnleið hjólreiða á höfuðborgarsvæðinu í vesturbæ Reykjavíkur sem lokað var fyrir þremur árum síðan vegna framkvæmda er enn lokað. Formaður Landssamtaka hjólreiðamanna segir augljóst að bílstjórar og verktakar séu í forgangi hjá borginni en ekki hjólreiðafólk. Þar séu atkvæði og peningar fyrir stjórnmálamenn í aðdraganda kosninga. Innlent 7.2.2026 16:26
Flutningabílar fastir á Þröskuldum Víða um land er hálka eða flughált. Flutningabílar sitja fastir á Þröskuldum. Innlent 7.2.2026 08:58
Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir umferðarslys sem varð á Miklubraut mjög alvarlegt. Hún óskar eftir vitnum og myndefni frá aðdraganda slyssins. Innlent 6.2.2026 08:34
„Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ „Ég hélt að þetta yrði borðliggjandi dæmi, þetta væri bara formsatriði. Þetta var eins og að vera sleginn niður aftur,” segir Sigurður Guðmundsson sem varð fyrir alvarlegu slysi í göngutúr með hundinn sinn þann 26. nóvember árið 2024. Ökumaður keyrði á Sigurð og hundinn, með þeim afleiðingum að Sigurður hlaut lífshættulega fjöláverka, þar á meðal heilablæðingu og alvarlegan dreifðan heilaáverka. Innlent 1.2.2026 10:02
„Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Karlmaður sem var í gær handtekinn eftir langa eftirför lögreglu um Reykjavík í gær mun eiga yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota. Innlent 1.2.2026 08:05
Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Mikið var um mál tengd umferðinni í umdæmi lögreglustöðvar þrjú, sem fer með mál í Kópavogi og Breiðholti. Innlent 25.1.2026 07:53
Mesti fjöldi í sögu bráðamóttökunnar Aldrei hafa jafn margir leitað á bráðamóttöku Landspítalans vegna hálkuslysa á einum degi líkt og á þriðjudag þegar níutíu slösuðust. Leggja þurfti fimm inn á sjúkrahúsið. Innlent 22.1.2026 15:59
Annasamasti dagur á bráðamóttöku í lækna minnum Hálfgert hættuástand skapaðist sunnan- og vestanlands fyrir akandi, hjólandi og gangandi vegfarendur vegna flughálku í morgun. Rekja má fjölda umferðaróhappa og slysa til hennar. Á hádegi höfðu þrjátíu manns leitað á bráðamóttöku vegna hálkumeiðsla en í kvöld hafði sú tala hækkað í áttatíu. Innlent 20.1.2026 20:40
Dýr framtíðarlausn að færa þjóðveginn vegna grjóthruns Vegagerðin segist hafa skoðað að færa þjóðveg 1 fjær Steinafjalli en telur það framtíðarlausn sem sé töluvert dýrari en hrunvarnir sem bjóða á út á næstunni. Koma þurfi upp hrunvörnum víðar en við Steinafjall þar sem erlend ferðakona lést þegar grjót hrundi á bíl hennar í fyrra. Innlent 20.1.2026 14:10
Á þriðja tug á bráðamóttöku vegna hálkuslysa Fyrirséð er að mikið verði að gera á bráðamóttöku Landspítalans vegna hálkuslysa og bið gæti myndast, að sögn upplýsingafulltrúa spítalans. Á þriðja tug manna höfðu leitað á móttökuna vegna slíkra slysa í morgun. Innlent 20.1.2026 10:35
Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Vegagerðin hyggst setja upp svokallaðar grjótgrindur við Steinafjall þar sem banaslys varð í fyrra. Rannsóknarnefnd samgönguslysa óskaði eftir úrbótum í nýrri skýrslu. Innlent 19.1.2026 18:41
Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að Vegagerðin vinni þegar í stað að úrbótum á hringveginum við Steinafjall á Suðurlandi eftir að erlend ferðakona lést þegar stærðarinnar grjót féll á bíl hennar. Líkur á slíkum slysum eru sagðar hafa aukist vegna þyngri umferðar um veginn. Innlent 19.1.2026 12:11
Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Hið minnsta tveir hafa verið fluttir til skoðunar á slysadeild eftir fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut við Hvassahraun upp úr klukkan 23 í kvöld. Innlent 16.1.2026 23:49
Veittu ökumanni eftirför sem endaði á ljósastaur Tilraun ökumanns til að komast undan lögreglu sem hafði veitt honum eftirför síðdegis í dag endaði ekki betur en svo að bíll hans hafnaði á ljósastaur við Ártúnsbrekku í Reykjavík. Uppákoman hefur valdið nokkrum umferðartöfum á svæðinu til viðbótar við annars nokkuð þunga síðdegisumferð samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Innlent 13.1.2026 16:00
Seinka læknisskoðun fyrir endurnýjun ökuskírteina Innviðaráðherra hyggst breyta reglum um ökuskírteini svo ökumenn þurfi ekki að gangast undir læknisskoðun á grundvelli aldurs fyrr en það verður 75 ára gamalt. Innlent 10.1.2026 15:21
Hátt í hundrað á fjöldahjálparstöð Hátt í þrjátíu manns hafa verið ferjaðir með bílum björgunarsveita á Suður- og Suðausturlandi á fjöldahjálparstöð í Hofgarði í dag. Um fjörutíu ökutæki sitja föst við Kotá. Innlent 8.1.2026 18:06
Veginum lokað við Skaftafell og fólk leitar í fjöldahjálparstöð Hið minnsta átta hafa í dag leitað í fjöldahjálparstöð sem Rauði krossinn opnaði í grunnskólanum Hofgarði í Öræfum á Suðausturlandi. Vegurinn á milli Skaftafells og Jökulsárlóns er lokaður vegna ófærðar. Gul viðvörun er í gildi á Suðurlandi. Veður 8.1.2026 15:38
Suðurlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Suðurlandsvegur var lokað í báðar áttir á milli Lækjarbotna að Gunnarshólma í morgun vegna umferðarslys. Þetta kemur fram í stuttri tilkynningu á vef Vegagerðarinnar. Samkvæmt fyrstu upplýsingum frá lögreglunni var veginum lokað til beggja átta sunnan Hólmsár en lögregla stýrir nú umferð á vettvangi um eina akrein. Innlent 5.1.2026 09:33
Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Teitur Þorkelsson leiðsögumaður kom að bílveltu í gær, nýársmorgun, við Kambana á Hellisheiði og furðar sig á því að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum. Í bílnum voru ferðamenn sem voru fluttir til Hveragerðis til aðhlynningar og voru ekki alvarlega slasaðir að sögn Teits. Hann segir þau þó hafa verið í miklu áfalli. Innlent 2.1.2026 08:25
Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Tíu létust í banaslysum í umferðinni á árinu sem er að renna sitt skeið. Þórhildur Elín Elínardóttir, samskiptastjóri hjá Samgöngustofu, segir fleiri en áður kjósa að nota ekki bílbelti; hegðun sem kosti mannslíf. Innlent 30.12.2025 19:29