Umferðaröryggi

Fréttamynd

Flýtum tvö­földun Vestur­lands­vegar – í þágu umferðaröryggis

Ný samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar sendir að sumu leyti jákvæð skilaboð til íbúa á Vesturlandi. Þar er meðal annars gert ráð fyrir tvöföldun Vesturlandsvegar, þjóðvegar 1, á kaflanum frá Hvalfjarðargöngum að Borgarnesi. Það eru jákvæð tíðindi enda er um einn fjölfarnasta kafla þjóðvegar landsins að ræða og leið sem þúsundir ökumanna fara um á hverjum degi.

Skoðun
Fréttamynd

„Pólitísk á­kvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110

Framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar segir mögulegt að hækka hámarkshraða á ákveðnum vegköflum í 110 kílómetra, séu þeir hannaðir með tilliti til þess. Tvöföldun vegarins milli Hvalfjarðar og Borgarness er þegar í samgönguáætlun, auk áframhaldandi uppbyggingar Suðurlandsvegar austur að Selfossi.

Innlent
Fréttamynd

Lög­reglan rann­sakar enn eitt inn­brotið í borginni

Lögreglunni barst í dag tilkynning um innbrot á varðsvæði stöðvar 1 en hún sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi. Er málið til rannsóknar en frá mánaðamótum hafa rétt tæplega fimmtíu tilkynningar um innbrot borist lögreglunni á stöð 1.

Innlent
Fréttamynd

Tengivagn valt á Vestur­lands­vegi

Lögregla var kölluð til á fjórða tímanum vegna umferðaróhapps á Vesturlandsvegi þar sem flutningabíl með tengivagn í eftirdragi hafði misst tengivagninn út af svo hann valt.

Innlent
Fréttamynd

Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp

Unnið er að hrunavörnum við Holtsnúp við Steinafjall undir Eyjafjöllum, meðfram Hringveginum. Staðurinn hefur verð til skoðunar um nokkurt skeið en þar varð banaslys í mars í fyrra. 

Innlent
Fréttamynd

Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila alla­vega ekki þessa hugsun“

Ekki eru allir á sama máli um hvort hjóla megi yfir á rauðu ljósi. Í umferðarlögum kveður þó skýrt á um að ökumönnum sé „óheimilt að aka gegn rauðu umferðarljósi. Við rautt ljós skal ökutæki stöðvað áður en komið er að stöðvunarlínu eða, ef stöðvunarlínu vantar, umferðarljósastólpa.“ 

Innlent
Fréttamynd

Mats­gerðirnar einar ekki nægar til að sanna akstur undir á­hrifum slævandi lyfja

Landsréttur hefur mildað dóm yfir manni sem meðal annars var dæmdur í héraði fyrir að hafa í fjögur skipti ekið undir áhrifum slævandi lyfja á Akureyri. Maðurinn var upphaflega dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Norðurlands eystra, en Landsréttur sýknaði manninn af því að hafa ekið undir áhrifum og mildaði dóminn í þrjá mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Rekja hundruð dauðs­falla á ári til stærri bíla

Fjölgun jeppa og pallbíla í umferðinni er talin hafa leitt til allt að fjögur hundruð dauðsfalla gangandi vegfarenda í Bandaríkjunum á ári undanfarinn aldarfjórðung. Hátt húdd slíkra bíla og stærri blindsvæði auka hættuna á mannskæðum slysum.

Erlent
Fréttamynd

Sindri gerðist trukkabílstjóri

Sindri Sindrason kynnti sér hvað þarf til að gerast trukkabílstjóri í Íslandi í dag og ræddi við Guðna Svein Theodórsson, ökukennara sem hefur verið í faginu í rúm tuttugu og fimm ár. Að loknu góðu spjalli leyfði hann Sindra að spreyta sig á tryllitækinu. 

Lífið
Fréttamynd

Stytting hringvegarins sú næst­mesta á þessari öld

Ný brú yfir Hornafjarðarfljót var opnuð í dag. Hringvegurinn styttist um tólf kílómetra og leiðin milli Reykjavíkur og Hafnar um næstum fimmtán kílómetra. Vegamálastjóri sagði í ávarpi við brúarvígsluna að slík stytting hefði ekki orðið á hringveginum frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð árið 1998.

Innlent
Fréttamynd

Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl

Vegna tíðra óhappa á golfbílum í leigu ungra kylfinga hefur aldurstakmark hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar verið hækkað í tuttugu og fimm, en það er átta ára hækkun frá fyrra aldurstakmarki hjá klúbbnum.

Innlent
Fréttamynd

Bíll við bíl að Þing­völlum og um­ferð hreyfist hægt

Töluverð umferð er á Þingvallasvæðinu að sögn Péturs Sveinssonar, varðstjóra í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.  Samkvæmt ábendingum til fréttastofu sem og fréttamanni á vettvangi er nú bíll við bíl að Þingvöllum. Umferð hreyfist nú hægt.

Innlent
Fréttamynd

Hjartaljósin ekki sloppin

Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvað verður um hjartalaga umferðarljós Akureyrarbæjar. Málið er komið aftur á borð Vegagerðarinnar eftir ósk innviðaráðuneytisins um heimild til notkunar hjartalaga ljósops í rauðum umferðarljósum í reglugerð. 

Innlent
Fréttamynd

„Veru­lega á­huga­verður fávitaskapur“

„Þetta var verulega áhugaverður fávitaskapur, vægt til orða tekið,“ segir Halldór Guðmundsson mótorhjólamaður, sem mætti stærðarinnar pallbíl í blindbeygju nú á laugardaginn síðasta.

Innlent
Fréttamynd

Skaðinn sem þau hafi þurft að þola „óásættanlegur með öllu“

Reglugerðardrög um vanhæfismörk við stjórn ökutækis vegna neyslu lyfja ganga ekki nægilega langt, að mati ADHD samtakanna. Fólk með ADHD og aðrir viðkvæmir hópar hafi búið við réttaróöryggi í yfir sex ár og dæmi um að það hafi greitt sektir eða verið svipt ökuréttindum að ósekju. Taka verði á „fyrrnefndu óréttlæti og réttaróöryggi [heildstætt] og án tafa.“

Innlent