Innlent

Sendiherra í viðskiptum

Júlíus Hafstein, fyrrverandi borgarfulltrúi hóf störf í utanríkisráðuneytinu um áramótin. Júlíus mun hafa sendiherratign en starfa sem yfirmaður viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins. Verður hún aðskilin frá viðskiptaskrifstofu ráðuneytisins og einbeitir sér að útrás íslensks atvinnulífs. Júlíus hefur undanfarið starfað að verkefnum á borð við Heimastjórnarafmælið og Kristnihátíð fyrir stjórnvöld. Júlíus var um árabil borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur verslunarskóla- og íþróttakennarapróf.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×