Innlent

Ólafur afhenti trúnaðarbréf sitt

Ólafur Davíðsson, sendiherra Íslands í Þýskalandi, afhenti forseta Þýskalands, Horst Köhler, trúnaðarbréf sitt í dag. Þýskaland hefur um árabil verið stærsta viðskiptaland Íslands og voru heildarviðskipti landanna á síðastliðnu ári tæplega 60 milljarðar króna. Starfsmenn íslenska sendiráðsins í Þýskalandi eru átta talsins en það þjónar einnig Póllandi, Króatíu og Sviss.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×