Innlent

17 milljónir í íþróttaverkefni

Menntamálaráðherra hefur samþykkt tillögur Íþróttanefndar um tæplega sautján milljóna króna styrkveitingar úr íþróttasjóði til sextíu og fjögurra verkefna fyrir árið 2005. Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum vegna verkefna á árinu rann út í október síðastliðnum. Alls bárust 113 umsóknir en í fjárlögum ársins er sjóðnum ætlaðar rúmlega 18 milljónir króna. Styrkir voru veittir til íþróttarannsókna, útbreiðslu- og fræðsluverkefna og verkefna sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×