Gildi lífsins rædd í afslöppuðu an 13. október 2005 15:20 "
Námskeiðin eru fyrir almenning og fjalla um ýmis grundvallaratriði í kristindómnum. Þar er áhersla lögð á afslappað og þægilegt andrúmsloft og eðlilegt málfar en guðfræðileg hugtök eru lögð til hliðar," segir Ragnar Snær Karlsson hjá KFUM og K þegar hann er spurður um hvað Alfanámskeið snúist en eitt slíkt hefst 17. janúar kl. 19 í húsakynnum KFUM og K við Holtaveg. Ragnar segir hvert kvöld byggjast upp á fyrirlestri en ávallt sé samt byrjað á að borða saman og spjalla. "Máltíðin hefur samfélagslegt gildi. Fólk kynnist þar og talar saman um daginn og veginn. Svo er fyrirlestur í 40 mínútur og síðan kemur fólk saman í hópum til frjálsra umræðna. Þar er enginn knúinn til að tjá sig en menn mega varpa fram spurningum og hugmyndum hvort sem er út frá fyrirlestrinum, kristindómnum eða almennum siðferðilegum hugsunum. Ragnar segir námskeiðin mjög ódýr og telur þau nýtast öllum hvort sem þeir hafi mikla eða litla þekkingu á viðfangsefninu fyrir. Þau standa í 10 kvöld og eru einu sinni í viku. Eftir 5. til 6. skipti er farið í Vindáshlíð eina helgi og þar er talað um ýmislegt sem er ofar hversdagslegum hlutum.
Nám Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Loni Anderson er látin Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Terry Reid látinn Lífið Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira