Menning

Kát á kynfræðslukarnivali

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var líf og fjör á frumsýningu SexEd á dögunum.
Það var líf og fjör á frumsýningu SexEd á dögunum. AMANDA MUSTARD

Fjörið var í hámarki í Borgarleikhúsinu á dögunum þegar frumsýning á SexEd fór fram. Er um að ræða fullorðinssirkus og kynfræðslukarnival þar sem íslenska kabarettsenan mætir óbeisluðum brúðusirkus Visceral Abstractions frá New York.

Sýningarhópurinn lýsir sér sem absúrdísku sirkus- og brúðuleikhúskollektívi sem hefur frá 2017 blandað saman brúðum, líkama, loftfimleikum, húmor og súrrealískri sviðslist. 

Í þessari sýningu er mannslíkaminn, löngunin og samskiptin tekin í sundur og sett saman aftur með ódýrum bröndurum, spennu fjölleikahússins og óvæntri blíðu.

Sýningin SexEd fær íslenskan líkama, íslenska rödd og nýtt samhengi í Borgarleikhúsinu. AMANDA MUSTARD

Sex Ed hefur verið þróuð í nokkrum útgáfum í New York og meðal annars sýnd á House of Yes og The Slipper Room. Nú fær sýningin íslenskan líkama, íslenska rödd og nýtt samhengi á litla sviðinu, þar sem lofthæðin er nýtt til hins ítrasta. Útkoman er fræðsla sem gleymir aldrei að skemmta, skökk, líkamleg, forvitin og ófeimin.

Hér má sjá vel valdar myndir af gestum á frumsýningu:

Systkinin Eva Engilráð Thoroddsen og Curver Thoroddsen.Owen Fiene
Sveinn Kjartansson og Viðar Eggertsson.Owen Fiene
Eva Signý Berger og Katrín Rut Bessadóttir.Owen Fiene
Pjetur Þorsteinn Maack og Ragnheiður Ólafsdóttir.Owen Fiene
Glæsilegir gestir.Owen Fiene
Húðflúrarinn Neil Martin Horvath ásamt móður sinni.Owen Fiene
Fanney Sizemore og Eva Halldóra Guðmundsdóttir.Owen Fiene
Vigfús Karl Steinsson og Eva Halldóra Guðmundsdóttir.Owen Fiene
Kristín Ögmundsdóttir og Tinna Grétarsdóttir.Owen Fiene
Bergdís Inga Brynjarsdóttir og Inga Auðbjörg Straumland.Owen Fiene
Egill Andrason, Bjartur Bachman, Marta Ákadóttir og Melkorka Gunborg Briansdóttir. Owen Fiene
Axel Ingi Árnason og Gréta Kristín Ómarsdóttir.Owen Fiene
Herdís Anna Jónasdóttir og Teitur Þorkelsson.Owen Fiene
Pálmi Sigurhjartarson, Herdís Anna Þorvaldsdóttir, Egill Heiðar Anton Pálsson og Kittý Johansen.Owen Fiene
Skvísur.Owen Fiene
Valgerður Rúnarsdóttir og Eirún Sigurðardóttir í góðum félagsskap.Owen Fiene
Carissa Baktay, Bjarni Óskarsson og Óskar Páll Sveinsson.Owen Fiene
Stefanía Adolfsdóttir og Sigurður Halldórsson.Owen Fiene
Dansararnir Júlía Kolbrún Sigurðardóttir og Anna Guðrún Tómasdóttir ásamt glæsilegum herra.Owen Fiene
Símon Birgisson, Jói Jóhanns og Valur Grettisson.Owen Fiene
Hljómsveitin J Bear and The Cubs.Owen Fiene
Stefán Jónsson ásamt glæsilegri skvísu.Owen Fiene
Albert Eiríksson og Bergþór Pálsson alltaf elegant báðir.Owen Fiene





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.