Menning

Eva Björg verð­launuð í Frakk­landi

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Eva Björg með Cognac-verðlaunin.
Eva Björg með Cognac-verðlaunin.

Glæpasagnahöfundurinn Eva Björg Ægisdóttir hlaut í gærkvöldi verðlaun á glæpasagnahátíðinni Prix Polar de Cognac fyrir bókina Heim fyrir myrkur. Verðlaunin eru veitt fyrir bestu erlendu glæpasöguna í Frakklandi og hafa margir rómaðir glæpasagnahöfundar hlotið verðlaunin.

Prix Polar de Cognac-hátíðin hefur verið haldin í Cognac síðan 1996, er tileinkuð glæpasögum og spennutryllum og eru þar veitt verðlaun í fimm flokkum: skáldsögum, teiknimyndasögum, kvikmyndum, leikhúsi og sjónvarpi.

Sjö bækur voru tilnefndar til glæpasagnaverðlaunanna og á meðal annarra höfunda voru Shari Lapena, Johana Gustawsson og Thomas Enger, og Kelsey Cox. 

Heim fyrir myrkur kom út árið 2023.

Meðal fyrri verðlaunahafa eru kanónur á borð við Peter James, Camillu Läckberg, Karin Slaughter, Paulu Hawkins og Tove Alsterdal.

Það er skammt stórra högga á milli hjá Evu Björgu. Í vikunni var sjónvarpsþáttaserían Elma frumsýnd á Sjónvarpi Símans en hún er gerð eftir fyrstu bók hennar, Marrinu í stiganum. 

Í næstu viku kemur svo út bókin Þau sem urðu eftir en hún markar upphafið að nýrri seríu Evu Bjargar.


Tengdar fréttir

Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið

Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á fyrstu stiklu þáttanna Elmu, sem er ný íslensk spennuþáttaröð úr bókinni Marrið í stiganum eftir Evu Björgu. Unnur Birna Backman og Nikulás Hansen Daðason fara með aðalhlutverk.

Setti óvart heilt bæjarfélag inn í morðöldu

„Ég var náttúrulega búin að vera að skrifa um Akranes sem ég gerði mér ekki alveg grein fyrir hvað þýddi þegar ég var að skrifa fyrstu bókina. Að ég væri að taka svona heilt bæjarfélag og setja það inn í einhvers konar drápsöldu,“ segir rithöfundurinn Eva Björg Ægisdóttir í þættinum Jólasögu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.