Innlent

Samfylkingin vill aflétta trúnaði

Þingflokkur Samfylkingarinnar fer fram á að trúnaði verði aflétt af fundargerðum utanríkismálanefndar og ríkisstjórnarinnar þar sem fjallað var um aðdraganda ákvörðunarinnar um stuðning Íslands við innrásina í Írak. Þingflokkur Samfylkingarinnar telur mikilvægt að allur vafi verði tekinn af um það hvernig ákvörðunin um stuðning Íslands við innrásina í Írak var tekin þar sem fulltrúar stjórnarflokkanna hafi orðið margsaga í málinu. Ríkir almannahagsmunir hnígi að því að viðkomandi fundargerðir verði gerðar opinberar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×