Innlent

Óeðlileg yfirlýsing Gylfa

Þingflokkur Frjálslynda flokksins telur óeðlilegt að forsvarsmenn samtaka launamanna lýsi því yfir að einn forystumaður í stjórnmálaflokki sé öðrum fremri, eins og Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, kaus að gera. Gylfi sagði stuðning verkalýðshreyfingarinnar við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur ótvíræðan. Í tilkynningu frá Frjálslynda flokknum segir að forystumönnum samtaka launþega, þar sem allar stjórnmálaskoðanir rúmast, beri að gæta varkárni í yfirlýsingum um einstaka stjórnmálamenn og stjórnmálaflokka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×