Nálgumst það sem við viljum 26. janúar 2005 00:01 "
Þetta námskeið er fyrir alla aldurshópa. Þessi spurning hefur fylgt manni síðan í barndómi og hún fylgir manni eiginlega alla ævina þótt maður finni sér sinn stað í lífinu ef svo má segja. Það eru margir sem eru ekki alveg vissir um hvað þeir vilji gera og langar ef til vill að gera eitthvað allt annað í lífinu. Á námskeiðinu gefum við okkur tíma til að spyrja okkur þessarar spurningar og veltum upp ýmsum leiðum um hvernig við getum nálgast það sem við viljum á skilvirkan hátt. Við verðum að hlusta betur á okkur og hvað við viljum. Oft er mikið að gera hjá fólki og ekki tími til að spyrja sig hvað maður vill raunverulega gera við líf sitt. Á námskeiðinu reynum við að nálgast það sem býr innra með okkur, þrár okkar og drauma, og athuga hvort við getum ekki látið þessa drauma rætast," segir Petrína. Þetta námskeið Árelíu og Petrínu er einkaframtak en þær stöllur koma úr ólíkum áttum. "Ég er prestur og nam guðfræði en Árelía er lektor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands og kennir stjórnun. Við nálgumst því efnið á ólíkan hátt en við byggjum námskeiðið ekki upp á neinni kenningu eða hugmyndafræði. Við höfum verið að vinna mikið með fólki og finnst það afskaplega skemmtilegt og gefandi. Við höfum líka sjálfar spurt okkur þessarar spurningar þannig að við ákváðum að stilla krafta okkar saman og deila okkar hugsunum með öðru fólki." Námskeiðið verður haldið í safnaðarheimili Neskirkju föstudaginn 28. janúar frá klukkan 20 til 22 og laugardaginn 29. janúar frá klukkan 10 til 12 og frá 13 til 17 og verðið er 16.000 krónur. "Við tökum okkur góðan tíma í að velta þessari spurningu fyrir okkur og við byggjum námskeiðið upp á fyrirlestrum og þátttakendur vinna einnig verkefni, bæði upp á eigin spýtur og í hóp. Það koma upp margar hindranir þegar þessari spurningu er kastað fram og við reynum að takast á við þær og komast yfir þær. Við ræðum spurninguna líka en henni er auðvitað ekki svarað einn, tveir og tíu. Fólk er enn að svara henni eftir að námskeiðinu lýkur og getur nýtt sér það sem það lærði á námskeiðinu í framtíðinni. Síðan er magnað hvað hægt er að læra mikið af því að hitta annað fólk á sama reiki." Upplýsingar veita Árelía í síma 660 0741 og Petrína í síma 690 0775.
Nám Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp „Skelfileg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra áhrifaríkasta“ Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið Tár eftir hverja sýningu Lífið Slakur með 62 milljón króna hálsmen Tíska og hönnun „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Fleiri fréttir Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla „Sorglegt að sjá svona flottan feril“ á þessum stað Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Andrew á Louvre Kinký bangsar og leðurklæddir kroppar „Ósmekkleg“ meðferð á eldri leikurum og álagið keyrt upp Forsetinn, fjölmiðlaskvísur og kempur í Borgarnesinu Fimm frækin fylltu Landsbankahúsið „Ný sýn, nýr heimur“ Metnaðarfull Mamma Mia í Hafnarfirðinum Seldu upp og undirrituðu samning til 666 ára Alaska og Birnir sigursæl Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Ólöf og Magnús ástfangin á frumsýningu Hestastelpa úr sveit og sjóðheitur hönnuður Pétur Gunnarsson sæmdur heiðursdoktorsnafnbót „Ljúfsárt og svolítið erfitt að kveðja kvikmyndahúsin“ Sjá meira