Innlent

Fjölmiðlanefnd vinnur lengur

Nefnd menntamálaráðherra, sem á að gera tillögur að frumvarpi um fjölmiðla, nær ekki að skila af sér á morgun eins og til stóð. Karl Axelsson, formaður nefndarinnar, segir að tíminn sem nefndinni var ætlaður til verksins hafi reynst allt of stuttur miðað við umfang þess og það skýrist ekki fyrr en eftir mánuð eða svo hvenær nefndin ljúki störfum og skili af sér skýrslu. Líklega náist þó að leggja hana fram fyrir þinglok.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×