Innlent

Vill vernd fyrir sparifjáreigendur

Íslendingar eiga 280 milljarða króna inni á bankareikningum sínum. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, óttast að sú staða komi upp að bankarnir geti ekki greitt þetta út og vill aukna vernd fyrir sparifjáreigendur. Á Íslandi er til rúmlega ein milljón bankareikninga og meðalinnistæða á þeim er 250 þúsund krónur. Þetta þýðir að sparifjáreign landsmanna er 280 milljarðar króna og þá er ekki talin með verðbréfaeign. Á sama tíma lána bankarnir fé sem aldrei fyrr, í fyrra meira en tvöfölduðust útlánin. Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur áhyggjur af því að sú staða gæti komið upp að bankarnir geti ekki greitt sparifé landsmanna út ef kreppa skellur á. Hún segist hafa áhyggjur miðað við þá útlánaþenslu sem verið hafi hér á markaði hjá bönkum, mikla veðsetningu á eignum og umræðu víða um það að það gæti hugsanlega komið upp sama staða og var annars staðar á Norðurlöndum þar sem bankar lentu í verulegum skakkaföllum og hætta var á fólk missti þar sínar inneignir í bönkum. Þetta vilji hún fyrirbyggja. Ef bankarnir geta ekki greitt út féð er til sérstakur tryggingasjóður sem gerir það. Ef eignir sjóðsins hrökkva ekki til fær hver einstaklingur að lágmarki 1,7 milljónir króna nema hann hafi átt minna inni á bankabókinni. Annars staðar á Norðurlöndum er þessi lágmarksupphæð nokkru hærri, eða 3,3 milljónir í Danmörku og 19 milljónir í Noregi. Jóhanna spurði viðskiptaráðherra á þingi hvort þetta væri næg vernd. Hún segist vilja tryggja að þeir sem eigi innistæður í bönkum lendi ekki í erfiðleikum vegna þessa og missi sparifé sitt í bönkunum. Viðskiptaráðherra svaraði því til að hún vildi skoða það að hækka upphæðina og til þess þyrftu bankarnir að greiða meira í tryggingasjóðinn en þeir gera nú.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×