Innlent

Ráðinn upplýsingafulltrúi hjá NATO

Utanríkisráðuneytið hefur ráðið Börk Gunnarsson, kvikmyndagerðarmann og blaðamann, sem upplýsingafulltrúa hjá þjálfunarsveitum Atlantshafsbandalagsins í Írak. Að sögn Illuga Gunnarssonar, aðstoðarmanns utanríkisráðherra, er Börkur á förum til Ítalíu þar sem hann fer í vikuþjálfun áður en hann tekur við nýja starfinu í Írak. Illugi segir þetta vera lið í uppbyggingarstarfi líkt og í Afganistan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×