Innlent

Ekki hrifinn af ályktun um ESB

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, er ekki hrifinn af tillögu um að flokksþing Framsóknarflokksins álykti að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. Öll drög að ályktunum fyrir flokksþingið voru mótuð í vinnuhópum félagsmanna í Framsóknarflokknum. Í vinnuhópi um utanríkismál sat Siv Friðleifsdóttir alþingismaður en hún er einnig varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis. Siv sagðist í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 hafa tekið þátt í öllum vinnuhópunum. Í hópnum sat einnig Andrés Pétursson formaður Evrópusamtakanna. Ármann Höskuldsson, formaður vinnuhópsins, segir að drögin séu lögð fram til að skapa lifandi umræðu um Evrópmál á þinginu. Hann telji að tími sé kominn til að taka af skarið og afgreiða þessa umræðu, hvort eitthvað verði gert eða ekki. Aðspurður hversu umdeilt málið sé innan Framsóknarflokksins segiri Ármann að það sé eins og víðast annars staðar í samfélaginu, fólk skiptist í tvo mjög svipaða hópa. Fylgi við aðild rokki svolítið og það sé ástæðan fyrir pattstöðu í umræðunni. Ármann var inntur eftir því hvort hann teldi að drögin færu óbreytt í ályktun frá flokksþinginu en hann vildi ekkert segja um það þar sem umræður væru ekki hafnar og og hann gæti ekki sent skilaboð inn í vinnuhópinn en í sjálfu sér ætti hann ekki von á því. Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, er ekki hrifinn af þessum drögum. Hann segir að menn færu fram úr sér ef þeir ályktuðu með þessum hætti. Guðni bendir á að ríkisstjórnin hafi skýra stefnu í málinu og Framsóknarflokkurinn sömuleiðis sem hann telji að verði ofan á á flokksþinginu. Það sé ekkert sem segi að Íslendingar eigi að sækja um að ganga í Evrópusambandið. Hins vegar snúist stefna flokksins um, og það sé hið stóra verkefni, að marka EES-samninginn þannig að hann verði sem sterkust viðskiptabrú milli Íslands og Evrópu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×