Innlent

Bryndís hættir á þingi 1. ágúst

Bryndís Hlöðversdóttir ætlar að hætta þingmennsku til að taka við stöðu deildarforseta lagadeildar Viðskiptaháskólans í Bifröst. Gert er ráð fyrir að hún hætti þingstörfum 1. ágúst. Næsti maður inn á þing er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Bryndís sagði í samtali við fréttastofu að ákvörðun sín hefði ekkert með það að gera hver væri hennar eftirmaður. Hún hefur setið á þingi í áratug og segir hún að nú sé kominn tími til að sinna sínu fagi sem er lögmennska.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×