Innlent

Ákvörðun tengist ekki formannsslag

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, tekur við þingmennsku af Bryndísi Hlöðversdóttur, sem gerist deildarstjóri lagadeildar Viðskiptaháskólans á Bifröst. Bryndís neitar því að hún sé að rýma til fyrir Ingibjörgu Sólrúnu í tengslum við framboð hennar til formanns Samfylkingarinnar. Tilkynnt var um ráðningu Bryndísar Hlöðversdóttur á fundi á Bifröst í dag. Bryndís, sem er menntaður lögfræðingur, hefur starfað við þingmennsku í áratug en segist ekki hafa getað hafnað því tækifæri að fá að starfa að uppbyggingu Viðskiptaháskólans. Við ráðningu Bryndísar að Bifröst losnar þingsæti. Það sæti fær Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykavíkurkjördæmi norður. Það hefur þó ekkert með ákvörðun Bryndísar að gera að hennar sögn. Bryndís segir að engin taki þá ákvörðun að víkja úr trúnaðarstarfi eins og þingmennskan sé nema á sínum eigin forsendum. Vissulega sé gott að vita að góð kona fylli skarð hennar en að öðru leyti taki hún þessa ákvörðun á eigin forsendum og ekki fyrir neinn nema sig sjálfa. Aðspurð hvort ekki sé illa komið fyrir Alþingi ef fólk kjósi heldur deildarforsetastöðu en að sitja þar sem fulltrúi þjóðar sinnar segir Bryndís að sér finnist það ekki. Deildarforsetastaða í háskóla sé mjög spennandi og miðað við þá menntun sem hún eigi að baki eigi staðan mjög vel við hana. Bryndís segist ekki fara út stjórnmálum vegna þess að henni leiðist að vera þar. Þetta hafi verið gríðarlega skemmtilegur tími og hún hafi öðlast mikla reynslu. En allt hafi sinn tíma og hún hafi setið á þingi í tíu ár og það þyki ágætur starfstími í mörgum öðrum störfum. Bryndís hefur störf á Bifröst þann 1. ágúst og þá tekur Ingibjörg Sólrún sæti hennar á Alþingi. Bryndís Hlöðversdóttir verður í ítarlegu viðtali um ákvörðun sína að víkja af Alþingi í Íslandi í bítið í fyrramálið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×