Innlent

Framsókn aldrei lægri hjá Gallup

Framsóknarflokkurinn mælist með tíu prósenta fylgi í könnun Gallups. Fylgið er minna en flokkurinn hefur áður mælst með hjá fyrirtækinu. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 37 prósenta fylgi og eykst um fjögur prósentustig frá síðustu könnun. Fylgið er þremur prósentustigum meira en í síðustu kosningum. Fylgi Samfylkingarinnar dalar um tvö prósentustig frá síðustu könnunn og er 32 prósent. Vinstrihreyfingin - grænt framboð stendur í stað með sextán prósent. Eins Frjálslyndi flokkurinn með fjögur. Vefur ríkisútvarpsins greindi frá.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×