Innlent

Tuttugu um hverja lóð

Rúmlega 1.300 einstaklingar og fyrirtæki sóttu um sextíu lóðir sem Hafnarfjarðarbær auglýsti lausar til umsóknar. Lóðirnar eru í fjórða áfanga Valla og ná yfir átta hektara svæði. 46 lóðum verður úthlutað til einstaklinga og barst 1.151 umsókn í þær, eða 25 fyrir hverja lóð. Aðsókn verktaka var einnig mikil þótt ekki væri hún jafn mikil og hjá einstaklingum, 158 verktakar sóttu um fjórtán lóðir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×