Innlent

Fagnar yfirlýsingu ráðherra

MYND/Vísir
Samand ungra sjálfstæðismanna hefur sent frá sér tilkynningu þar sem yfirlýsingu iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra um breytt eignarhald á Landsvirkjun er fagnað, en ráðherrarnir hafa báðir lýst yfir vilja til að breyta fyrirtækinu í hlutafélag og skrá það á hlutabréfamarkaði. Ungir sjálfstæðismenn ítreka þá skoðun að hefja beri undirbúning að einkavæðingu á sviði orkuiðnaðar og segja Landsvirkjun og Rafmagnsveitur ríkisins góð dæmi um fyrirtæki á þessu sviði sem væru betur komin í einkaeigu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×