Innlent

Flugmiðinn fenginn

Stuðningsmenn Fischers efndu til blaðamannafundar í Tókýó í gær. Þar kom fram að íslenska sendiráðinu í Tókýó hefur verið sent svar við fyrirspurn íslenskra stjórnvalda, sem segir til um með hvaða hætti best sé að koma vegabréfi Bobby Fischer til hans, án þess að íslensk stjórnvöld skipti sér af japönskum innanríkismálum. Þá kom fram að stuðningsmenn Fischers hafa keypt handa honum opinn flugmiða og vonast til að hann fái að koma til Íslands fyrir sextíu og tveggja ára afmælisdag sinn á miðvikudaginn. Fischer er enn í einangrun og hefur ekki fengið að hafa samband við lögfræðinga sína, unnustu eða íslensku sendinefndina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×