Innlent

Feðrum gert erfitt að vera ábyrgir

Feðrum er gert erfitt um vik að vera ábyrgir foreldrar, því ekki er gengið út frá því að þeir geti sinnt foreldrahlutverkinu. Þetta segir Garðar Baldvinsson, formaður Félags ábyrgra feðra, sem kynnti borgarstjóra í morgun hugmyndir um stofnun karlaathvarfs. Félag ábyrgra feðra hefur gefið út bókina Feður og börn á nýrri öld, en í henni er að finna ítarlega úttekt á stöðu forsjárlausra feðra á Íslandi og barna þeirra. Fulltrúar félagsins afhentu borgarstjóra eintak af bókinni í morgun auk þess sem þeir kynntu stefnuskrá sína og helstu markmið, sem eru sameiginleg forsjá, jöfn umönnun og foreldrajafnrétti. Um 600 manns eru í Félagi ábyrgra feðra. Garðar Baldvinsson, formaður félagsins, segir að íslensk lög í þessum efnum tiltölulega góð en að túlkun þeirra sé í anda þeirrar stefnu að feður séu óábyrgir og eigi engan rétt. Feðrum sé gert erfitt um vik að vera ábyrgðir foreldrar. Á meðan það sé ekki viðurkennt að börn búi hjá forsjárlausu foreldri sé ekki viðurkennt að foreldrið þurfi húsnæði fyrir börnin. Þá sé ekki gengið út frá því að feður sinni foreldraskyldum sínum gagnvart barninu heldur sé barnið í umgengi hjá föðurnum. Félagið telji túlkun laganna þannig ganga gegn þeirri stefnu sem sett sé fram í barnalögum um að börn eigi tvímælalausan rétt á báðum foreldrum sínum. Félag ábyrgra feðra kynnti borgarstjóra einnig hugmyndir um að stofna sérstakt karlaathvarf sem hugsað yrði sem upplýsingasetur sem veitti ráðgjöf og húsnæðisaðstoð. Hann segir þetta nauðsynlegt því margir feður standi uppi slyppir og snauðir eftir skilnað og búi ekki yfir aðstöðu til að taka á móti börnum sínum. Garðar segist geta séð fyrir sér að eftir eitt til tvö ár verði borgin verið búin að koma upp slíku athvarfi. Það kosti 10-20 milljónir á ári að reka það en kostnaðurinn af réttindaleysi feðra hlaupi á tugum milljarða á ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×