Innlent

Ingibjörg formlega í framboði

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, tilkynnti formlega um framboð sitt til formanns flokksins í gær um leið og hún opnaði kosningaskrifstofu og heimasíðu undir slagorðinu: "Förum alla leið". "Eina leiðin til þess að knýja fram löngu tímabærar breytingar á stjórn landsins er að Samfylkingin fái meiri stuðning og að stjórnarflokkarnir tapi þingmeirihluta sínum. Samfylkingin þarf ennþá meiri byr í seglin og hann munum við fá með skýrum pólitískum markmiðum og því mikla mannvali sem við höfum á að skipa innan vébanda flokksins," segir Ingibjörg.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×