Innlent

Vilja ekki rífa hús við Laugaveg

Vinstri - grænir í Reykjavík hvetja til þess í ályktun sem þeir hafa sent frá sér að hugmyndir um að rífa hús við Laugaveg verði endurskoðaðar. Á félagsfundi á laugardag var samþykkt ályktun þar sem kemur m.a. fram að ýmis húsanna sem standi til að rífa hafi varðveislu- og menningarsögulegt gildi. Einnig telur fundurinn að varðveisla húsanna og núverandi götumyndar geti fallið einkar vel að skynsamlegri og nauðsynlegri uppbyggingu á byggingarreitum við Laugaveg. Öflug enduruppbygging, þar sem virðing fyrir menningararfinum sé í fyrirrúmi, sé árangursríkust til að laða að ferðamenn og efla verslun við Laugaveg.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×