Brugðið á leik í veislunni 16. mars 2005 00:01
Það er alltaf jafn vinsælt að bregða á leik og skipuleggja skemmtilega leiki í brúðkaup sem brúðhjónin og veislugestir geta notið. Leikurinn með Barbie og Ken virðist aldrei ætla að deyja út. Þar eru brúðhjón prófuð í þekkingu á maka sínum. Þau sitja bak í bak þar sem allir gestir sjá og eru hvort með sína Barbie- og Ken-dúkkuna. Síðan eru þau spurð spurninga um hvort sé til dæmis duglegra í uppvaskinu. Ef konan telur manninn vera duglegri heldur hún Ken-dúkkunni á loft en ef hún telur sig sjálfa vera duglegri heldur hún Barbie-dúkkunni á loft. Svona heldur þetta áfram í nokkrar spurningar og vekur yfirleitt mikla lukku meðal viðstaddra. Það er líka sniðugt að láta hvern veislugest fá lítinn blaðsnepil og penna. Hver og einn skrifar síðan falleg orð til brúðhjónanna á blaðið og daginn eftir brúðkaupið geta brúðhjónin skemmt sér við lesturinn. Lyklaleikurinn er líka vinsæll leikur og fyndinn. Nokkrir lyklar eru smíðaðir og í veislunni eru nokkrir gestir látnir fá lyklana þegar lítið ber á. Síðan heldur einhver gestur ræðu og þar er stiklað á stóru í íbúðamálum brúðhjónanna. Því næst eru allir þeir sem enn hafa lykil að íbúð brúðgumans eða brúðarinnar beðnir um að skila þeim. Þá standa allir upp sem eru með lykil og skila til veislustjóra. Að ná í hlut er skemmtilegur og lifandi brúðkaupsleikur. Einn fulltrúi af hverju borði kemur upp á svið þar sem stólum er raðað eins og í stólaleik. Það er sem sagt alltaf einum stól færra en keppendur eru. Keppendur fá síðan fyrirmæli um að sækja ákveðinn hlut á sitt borð eins og til dæmis framsóknarmann, sokkabuxur eða úr. Sá sem kemur síðastur upp á svið með hlutinn dettur úr leik. Svona gengur þetta þangað til einn stendur uppi sem sigurvegari. Auðvitað verða þrautirnar erfiðari og erfiðari eftir því sem líður á leikinn og hasarinn magnast. Dans og söngur klikkar ekki. Tilvalið er að veislustjóri útbúi söngbók og stofni til fjöldasöngs. Inni á milli matarrétta er síðan hægt að slá öllu upp í grín og dansa saman.
Mest lesið Óvíst hvort Ísland verði með í Eurovision Lífið Skringilega stór kaffibolli: „Ég verð aldrei aftur hreinn“ Lífið Tjáði sig um ástarsambandið sem splundraði tveimur hjónaböndum Bíó og sjónvarp „Ég elskaði þig í fyrra lífi, ég elska þig í þessu lífi og mun finna þig í næsta“ Lífið Brúðarbíllinn gömul dráttarvél frá langafa Lífið Kynlífsstellingar sem kveikja í kofanum Lífið Stjörnulífið: „Skemmtilegasta kvöld lífs míns“ Lífið Fáklædd og flott á dreglinum Tíska og hönnun Pabbi fyrir tvítugt, ekkill þrítugur, afi um fertugt og veltir rúmum milljarði Áskorun Virkilega sláandi lífsreynsla að koma til Grindavíkur Lífið Fleiri fréttir Fögnuðu Þjóðbúningadeginum með stæl Fáklædd og flott á dreglinum „Hugsa fallega til stelpunnar sem ég var þá“ Þjóðbúningurinn aðal skvísuflíkin í dag Aðalfyrirsæta í herferð 66°Norður 99 ára gömul Búið að krýna nýjan arftaka Vogue-veldisins Klæddist brúðarkjólnum daglega í stúdentsprófunum Stígur út fyrir ramma raunveruleikans Amman helsta fyrirmynd tískudrottningar Reykjavíkur Breyta merki Eurovision Sjá meira