Parmaskinkuvafin og spergilfyllt kjúklingabringa með papriku og appelsínusósu 17. mars 2005 00:01
Rúnar Þór Rúnarsson nemi á Grand Hóteli og Pétur Örn Pétursson nemi í Sjávarkjallaranum urðu um síðustu helgi matreiðslunemar ársins. Titlinum fylgir sú ábyrgð að þeir keppa fyrir Íslands hönd í keppni norrænna matreiðslunema að ári. Níu matreiðslunemar tóku þátt í keppninni, sem fór fram í Menntaskólanum á Akureyri um síðustu helgi. „Við fáum ákveðið grunnhráefni sem við þurfum að elda úr og eigum að elda þriggja rétta máltíð fyrir sjö manns,“ segir Rúnar Þór. „Í forréttinum áttum við að elda úr saltfiski og bankabyggi, í aðalréttinum úr kjúklingi og aspas og í eftirréttinn úr hvítu súkkulaði og hindberjum og með því þurfti að vera einhver bakstur.“ Nemarnir fengu upplýsingar um hráefnið þremur vikum fyrir keppnina og segist Rúnar hafa nýtt þann tíma vel til að æfa sig. „Ég var eiginlega að æfa mig dag og nótt,“ segir hann en tveir aðrir nemar á Grand hóteli voru einnig meðal keppenda þannig að samanlagt voru þeir þriðjungur keppenda í matreiðslukeppninni. "Nei, gestir Grand Hótels fengu nú ekki njóta undirbúningsins," segir Rúnar aðspurður. „En samstarfsmennirnir fengu þeim mun meira að smakka frá okkur öllum þremur.“ Þegar í keppnina var komið höfðu nemarnir fjóra klukkutíma til að undirbúa sig og síðan hálftíma milli rétta þannig að keppnin stóð fimm klukkutíma alls. Rúnar Þór og Pétur Örn munu nýta árið fram að keppninni vel. Þeir munu æfa saman undir handleiðslu matreiðslumanna frá fræðsluráði hótel- og mætvælagreina. „Vonandi gengur jafn vel þá,“ segir Rúnar Þór.Parmaskinkuvafin og spergilfyllt kjúklingabringa með papriku og appelsínusósuKjúklingarúllaParmaskinka í sneiðumKjúklingabringaSpergill (soðinn og snöggkældur)kjúklingafars Kjúklingabringan er skorin til þannig að hún sé flöt og jafn þykk á alla kanta. Þá er hún lögð ofan á parmaskinkusneiðarnar með plastfilmu undir, þannig að skinkan hylji kjúllann alveg, kryddað með salti og pipar. Farsi sprautað í miðjuna og spergli stungið í farsið. Rúllunni rúllað upp í plastfilmuna og hert vel að. Bakað í ofni við 120°C um 25-30 mín.200 g kjúklingur4 g salt1 eggjahvíta100 ml rjómi30 ml vermútSalt og pipar Kjúklingurinn er maukaður með salti og eggjahvítu í matvinnsluvél. Farsið sett í aðra skál og rjóma og vermút bætt varlega saman við. Kryddað til með salti og pipar. Gott getur verið að saxa kóríander og blanda við farsið.Papriku-terrinePaprika (gul og rauð)1/2 dl parmesan (rifinn)Salt og pipar Paprikan er afhýdd, stungin út í ferhyrndu formi, krydduð til með salti og pipar og raðað í formið aftur með parmesan á milli laga, gul og rauð til skiptis. Þá er hún bökuð í ofni við 180°C um 15 mín. Gott er að baka paprikuna með fargi svo hún haldist saman. Kartöflur Kartöflurnar eru stungnar út og brúnaðar á pönnu með smjöri. Síðan er hún bökuð í kjötsoði þar til hún er meyr. Sætakartöflumús 1 meðalstór sætkartafla er bökuð í ofni á grófu salti í 40 mínútur eða þar til hún er meyr. Þá er hún afhýdd og maukuð með 40 g af smjöri, safa og rifnum berki af hálfri límónu, saltað og piprað eftir smekk. Maukinu sprautað á kartöfluna.Appelsínusósa45 g sykur3 msk. rauðvín edik700 ml kjúklingasoð3 appelsínur1 sítrónasalt og pipar Sykur og edik er soðið saman í potti þar til sykurinn fer að brúnast. Þá er safinn úr appelsínunni og sítrónunni kreistur út í og kjúklingasoðinu bætt við. Þá er sósan soðin niður við vægan hita í um 40 mínútur. Þá er sósan krydduð til með salti og pipar eftir smekk.
Kjúklingur Sósur Uppskriftir Mest lesið Er Jón Gnarr búinn að horfa aðeins of oft á Pretty Woman? Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Lífið Tár eftir hverja sýningu Lífið Ómetanlegt að hafa sagt frá átröskuninni Lífið Fiskur og kjöt einnig á boðstólnum hjá Sollu Lífið Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp „Skelfileg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra áhrifaríkasta“ Lífið Gjöfull trekantur Menning