Gult, gult, gult 23. mars 2005 00:01
Nú þegar páskahátíðin fer í hönd er kjörið að skreyta heimilið hátt og lágt í þessum litum gleðinnar og mikið af skrautinu er þess eðlis að það má nota fram á haust. Elva Björk Jónatansdóttir, blómaskreytir hjá Blómastofu Friðfinns, segir að þó gult og grænt séu vissulega sígildir litir sé límónuliturinn í sífelldri sókn og skemmtilegt að nota hann með. "Á þessum árstíma ættu líka páskaliljur að prýða hvert heimili, og svo má ekki gleyma því að nú er hægt að setja þær út í beð eða ker," segir Elva Björk. "Afskornar páskaliljur standa í viku til tíu daga og þær er að auki hægt að fá á lauk. Ræturnar fara þá niður í vatnið en það verður að passa að laukurinn sjálfur blotni ekki því þá myglar hann. Þá er hægt að hengja páskaliljur á lauk upp á vegg því forðinn er í lauknum og hann lifir lengi þannig." Annars hvetur Elva Björk fólk til að nota hugmyndaflugið, fara út og sækja sér birkigreinar og skreyta. Skrautið á myndunum er úr Blómastofu Friðfinns....eða sítrónurPáskaskreyting úr birki og páskaliljum .Elskar mig, elskar mig ekki... þessi fallegu blóm sem minna á Baldursbrár eru ekki nýtínd af enginu heldur úr silki og standa árið um kring.Þessir kertastjakar eru í laginu eins og eggjaskurn og eiga vel við á páskaborðið.Lengjur með gulum perlum eru jafn fallegar hvort sem þær eru í vasa eða lagðar sem skraut á borðið.Páskaliljur á lauk er hægt að nota hvort sem er í vasa eða til að hengja upp á vegg.Gerviávextir eru skemmtilegt borðskraut eins og límónur ...
Hús og heimili Mest lesið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Lífið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Lífið Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Lífið Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Lífið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Fleiri fréttir Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Sjá meira