Innlent

Ástandið í Palestínu skelfilegt

Þingmennirnir Guðrún Ögmundsdóttir og Þuríður Backman eru nýkomnar frá Palestínu, en þangað fór hópur þingmanna til þess að kynna sér aðstæður í landinu. Þær Guðrún og Þuríður ræddu um förina í Íslandi í bítið í morgun og sögðu þær báðar að ástandið væri miklu verra í landinu en greint væri frá í fjölmiðlum. Þær líktu aðstæðum Palestínumanna við aðstæður gyðinga í seinni heimsstyrjöldinni þar sem Palestínumenn væru múraðir inn í borgir og borgarhluta líkt og gert var í gettóunum í Póllandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×