Innlent

Sýna myndir frá Palestínuför

Alþingismennirnir níu, sem komu til landsins í gær eftir tíu daga heimsókn til Palestínu og Ísraels, hafa boðað til blaðamannafundar í fyrramálið. Myndband og ljósmyndir úr ferðinni verða sýnd en meðal þeirra staða sem hópurinn heimsótti var borgin Ramallah á Vesturbakkanum, Betlehem og Gólanhæðir. Greint hefur verið frá því að ísraelskir landnemar á svæðum Palestínumanna grýttu íslenska hópinn en hann slapp ómeiddur. Þingmennirnir hafa líkt meðferð Ísraela á Palestínumönnum á sjálfsstjórnarsvæðum Palestínu við meðferð nasista á gyðingum í síðari heimsstyrjöldinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×