Fyrsti Suðurnesjaslagur kvenna 30. mars 2005 00:01
Keflavík og Grindavík hefja í kvöld leik í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta þegar Grindavík heimsækir Íslandsmeistara síðustu tveggja ára til Keflavíkur. Þetta er fyrsti Suðurnesjaslagurinn í 13 ára sögu úrslitakeppni kvenna en frá árinu 1991 hafa Suðurnesjalið spilað átta sinnum í lokaúrslitum karlakörfunnar. Keflavík og Grindavík hafa þrisvar sinnum spilað til úrslita í karlaflokki, Grindavík vann fyrsta einvígið 4-2 vorið 1996 en Keflavík hefur unnið tvö þau síðustu 3-0 (1997 og 2003). Keflavík hefur auk þess mætt Njarðvíkingum þrisvar sinnum í úrslitaeinvíginu og tvisvar sinnum hafa Njarðvík og Grindavík leikið um titilinn. Keflavíkurkonur eru nú í lokaúrslitunum í ellefta skiptið en aðeins tvisvar sinnum í sögu úrslitakeppni kvenna hafa úrslitin farið fram án Keflavíkurliðsins sem hefur unnið alls sjö Íslandsmeistaratitla eftir úrslitakeppni. Annað árið var þegar KR vann ÍS 3-2 fyrir þremur árum en hitt var í eina skiptið sem Grindavík hefur leikið í lokaúrslitnum eða vorið 1997. Grindavík sló þá út nágranna sína í Keflavík 2-0 í undanúrslitunum og vann síðan alla þrjá úrslitaleikina gegn KR þann seinasta í framlengingu í Hagaskólanum. Keflavíkurkonur hafa unnið úrslitaeinvígin 3-0 tvö síðustu ár, gegn KR 2003 og ÍS 2004 en það lið sem hefur unnið fyrsta leik lokaúrslitanna hefur fagnað Íslandsmeistaratitlinum í tíu af þeim tólf úrslitakeppnum sem eru að baki. Það var einungis árin 2000 og 2002 þar Íslandsmeistaranir unnu ekki fyrsta leikinn, KR tapaði 2-3 fyrir Keflavík eftir að hafa unnið fyrsta leikinn á heimavelli 51-48 vorið 2000 og ÍS tapaði 2-3 fyrir KR fyrir tveimur árum eftir að hafa unnið tvo fyrstu leiki einvígisins - báða eftir framlengingu.
Körfubolti Mest lesið Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Fótbolti Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga Fótbolti Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Fótbolti Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Fleiri fréttir Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ósigraður Kolbeinn kominn með næsta andstæðing Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Sjá meira