Dæmdur fyrir dópsmygl í Danmörku 12. apríl 2005 00:01
Íslendingur á fertugsaldri hefur verið dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Danmörku fyrir stórfellt fíkinefnasmygl. Til stóð að flytja fíkniefnin til Íslands. Maðurinn var stöðvaður við landamæri Þýskalands og Danmerkur í febrúar, en hann var að koma frá Hollandi. Við leit í bíl hans fundust 35 kíló af hassi í farangursgeymslunni. Maðurinn, sem var einn á ferð, var í framhaldinu úrskurðaður í gæsluvarðhald á meðan á rannsókn málsins stóð. Hann hefur nú verið dæmdur og fékk hann 2 1/2 árs fangelsi, sem kom bæði dönskum og íslenskum lögreglumönnum nokkuð á óvart því málið telst stórt, bæði á Íslandi sem og í Danmörku. Við rannsókn málsins kom í ljós að ætlunin var að flytja fíkniefnin til Íslands. Um svipað leyti var annar Íslendingur handtekinn í Norður-Þýskalandi með 30 kíló af hassi og við rannsókn málsins kom í ljós að ætlunin var að flytja kílóin 30 til Íslands. Ekki er búið að kveða upp dóm yfir manninum svo Stöð 2 sé kunnugt um. Þá er enn í fullum gangi rannsókn í máli tveggja skipverja af togaranum Hauki ÍS, en þeir voru teknir í Bremerhaven í byrjun janúar með mikið af fíkniefnum. Þeir reyndust vera með 3 1/2 kíló amfetamíni og 3 1/2 kíló af kókaíni. Þeir voru í framhaldinu úrskurðaðir í 6 mánaða gæsluvarðhald og stendur rannsókn málsins enn yfir. Togarinn var í sölutúr í Þýskalandi en fíkniefnin komu þangað frá Hollandi.
Erlent Fréttir Lög og regla Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira