Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Lovísa Arnardóttir skrifar 9. október 2026 14:02 Ekki kemur fram í úrskurði á hvaða veitingastað atvikið átti sér stað. Vísir/Vilhelm Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að því að ferðamönnum frá Ísrael var mismunað á íslenskum veitingastað í fyrra þegar eigandi vildi ekki afgreiða þau og rak þau út. Hann vildi ekki afgreiða þau á grundvelli þjóðernis þeirra.
Kærunefndin komst að því að eigandi veitingastaðarins braut gegn lögum um jafna meðferð utan vinnumarkaðar með því að neita ísraelskum manni og maka hans um þjónustu á veitingastað sínum á grundvelli þjóðernis þeirra. Úrskurðurinn er frá 11. september. Atvikið var kært 24. júlí í fyrra. Í úrskurðinum kemur fram að ísraelskur ferðamaður hafi kært ákvörðunina og að eigandi veitingastaðarins hafi staðfest lýsingu mannsins á atburðum, beðist afsökunar og tekið fulla ábyrgð á atvikinu. Þar sem fyrir lá afdráttarlaus viðurkenning af hálfu kærða á atvikum máls og því að mismunun hefði átt sér stað á grundvelli þjóðernisuppruna kæranda var veitingahúsaeigandinn talinn hafa brotið gegn ákvæðum 1. mgr. sjöundu og níundu greinar laga nr. 85/2018, um jafna meðferð utan vinnumarkaðar, en þar er fjallað almennt um bann við mismunun og um bann við mismunun í tengslum við vörukaup og þjónustu. Fór út að borða með maka Farið er yfir atvikið í úrskurði kærunefndar jafnréttismála. Þar kemur fram að ísraelski ferðamaðurinn hafi í fyrra farið með maka sínum á veitingastaðinn, pantað mat og greitt 3.000 kr. fyrir. Þau hafi spjallað við tvo starfsmenn og í samtalinu komið fram að þau væru frá Ísrael. Um tíu mínútum síðar hafi þriðji starfsmaðurinn, eigandinn, beðið þau að staðfesta pöntun og svo endurgreitt þeim 2.300 kr. og sagt að hann myndi ekki veita þeim þjónustu. Ferðamaðurinn spurði þá hvort ástæðan væri byggð á einhverju persónulegu, eins og hvort þau hefðu móðgað hana eða orðið misskilningur, eða hvort það væri tengt þjóðernisuppruna þeirra. Starfsmaðurinn svaraði þá að þau hefðu ekki móðgað hana á nokkurn hátt og að ákvörðunin um að neita þeim um þjónustu hefði verið byggð á því frá hvaða landi þau væru. Ferðamaðurinn benti þá starfsmanninum á að hann hefði ekki fengið að fullu endurgreitt og skellti þá starfsmaðurinn, samkvæmt úrskurði, fimm þúsund króna seðli á afgreiðsluborðið og skipaði parinu að fara. Skellti fimm þúsund krónum á borðið Í úrskurði kemur fram að þau hafi síðar fengið rétta skiptimynd til baka frá starfsmanninum sem upprunalega afgreiddi þau. Hann hafi ekki beðið þau að fara og þótt aðstæðurnar óþægilegar. Eftir það hafi þau farið út af veitingastaðnum og óskað starfsmönnum góðs kvölds. Í úrskurði kemur fram að atvikið hafi valdið parinu „hugarangri og þau hafi tekið það nærri sér“. Starfsmaðurinn sem vildi ekki afgreiða þau hafi ekki litið á þau sem manneskjur með einhver ákveðin gildi heldur mismunað þeim á grundvelli þess frá hvaða landi þau kæmu. „Kærandi tekur fram að markmið með kærunni sé að sjá til þess að viðlíka hegðun eigi sér ekki stað aftur á veitingastaðnum og að tekið sé á móti öllum viðskiptavinum af virðingu, á manneskjulegan hátt og án mismununar,“ segir að lokum í útskýringu á sjónarmiðum ferðamannsins í málinu. Ekki ágreiningum um atburði Í úrskurðinum kemur fram að í svörum eiganda veitingastaðarins staðfesti hann að atvikið hafi átt sér stað og að túlkun ferðamannanna sé sannleikanum samkvæm. Hann baðst afsökunar á óþægindunum og tók fulla ábyrgð á þeim. Í niðurstöðu kærunefndarinnar kemur fram að ekki sé ágreiningur um atvik máls. Þar kemur einnig fram að ferðamennirnir séu ánægðir með að starfsmennirnir hafi viðurkennt að atvikið hafi átt sér stað og þann vanda og mismunun sem það hafi falið í sér. Ferðamaðurinn tók jafnframt fram að hann og maki hans tækju við afsökunarbeiðni kærða. Þá kemur einnig fram að uppkvaðning úrskurðar hafi tafist vegna mikils fjölda mála sem sé til meðferðar hjá nefndinni auk breytinga á vistun nefndarinnar og starfsmannahaldi hennar. Tugir þúsunda látin Mikill fjöldi mótmæla fór fram á Íslandi og um allan heim í fyrra vegna stríðs Ísraels í Palestínu. Samið var um vopnahlé í október í fyrra. Enn fara slík mótmæli reglulega fram. Sniðgönguhreyfingin fyrir Palestínu, BDS Ísland, skoraði á stjórnvöld fyrr á árinu að innleiða skimanir við landamærin á ísraelskum ríkisborgurum á herskyldualdri og að þau banni frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi. Þrjú ár voru í vikunni frá því að Hamas-samtökin gerðu mannskæðustu hryðjuverkaárás á Ísrael í sögu landsins. Um 1200 voru myrt í árás Hamas og 251 tekin höndum, af þeim komust aðeins 168 lífs af. Um 74 þúsund Palestínumenn, þar af 21 þúsund barn, hafa verið drepin í árásum Ísraela sem hófust í kjölfar árásar Hamas.
Ísrael Úrskurðar- og kærunefndir Jafnréttismál Átök í Ísrael og Palestínu Tengdar fréttir Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Sniðgönguhreyfingin fyrir Palestínu, BDS Ísland, skorar á stjórnvöld að innleiða skimanir við landamærin á ísraelskum ríkisborgurum á herskyldualdri og að þau banni frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi. Rúm 800 hafa skrifað undir áskorun þess efnis til stjórnvalda. 19. ágúst 2026 14:50 Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Samúel Guðmundsson segir það hafa verið eins og rabbíninn Shmuley Boteach hafi verið að tala við einhvern annan þegar þeir tókust á í rökræðum. Viðbrögðin í kjölfar þáttarins hafi verið jákvæð en þó hafa honum borist einstaka hótanir. 14. ágúst 2026 10:48 Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Ísraelskir ferðamenn sem eru sagðir hafa ógnað starfsmanni kaffihússins og sætabrauðsverslunarinnar Lava Sweets og valdið þar tjóni segja frásögn palenstínskra eigenda staðarins ekki eiga við rök að styðjast. Þeir hafi til að mynda alls ekki farið inn á staðinn með það í huga að áreita eða ógna fólki. Dorrit Moussaieff var ein þeirra sem tjáðu sig um málið en mennirnir fjórir segja ekki við hana að sakast, hún hafi einfaldlega trúað því sem eigendurnir sögðu. 17. ágúst 2026 17:59 Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Sjá meira
Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Sniðgönguhreyfingin fyrir Palestínu, BDS Ísland, skorar á stjórnvöld að innleiða skimanir við landamærin á ísraelskum ríkisborgurum á herskyldualdri og að þau banni frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi. Rúm 800 hafa skrifað undir áskorun þess efnis til stjórnvalda. 19. ágúst 2026 14:50
Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Samúel Guðmundsson segir það hafa verið eins og rabbíninn Shmuley Boteach hafi verið að tala við einhvern annan þegar þeir tókust á í rökræðum. Viðbrögðin í kjölfar þáttarins hafi verið jákvæð en þó hafa honum borist einstaka hótanir. 14. ágúst 2026 10:48
Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Ísraelskir ferðamenn sem eru sagðir hafa ógnað starfsmanni kaffihússins og sætabrauðsverslunarinnar Lava Sweets og valdið þar tjóni segja frásögn palenstínskra eigenda staðarins ekki eiga við rök að styðjast. Þeir hafi til að mynda alls ekki farið inn á staðinn með það í huga að áreita eða ógna fólki. Dorrit Moussaieff var ein þeirra sem tjáðu sig um málið en mennirnir fjórir segja ekki við hana að sakast, hún hafi einfaldlega trúað því sem eigendurnir sögðu. 17. ágúst 2026 17:59