Innlent

Líst vel á verðhækkun á díselolíu

Sigríði Önnu Þórðadóttur umhverfisráðherra líst vel á að díselolía, sem er umhverfisvænni en bensín, verði dýrari en bensín. Hún telur þetta mikla hvatningu fyrir bíleigendur að skipta yfir á díselbíl. Sigríður Anna hafði ekki hugmynd um að díselolían yrði dýrari fyrr en Stöð 2 greindi henni frá því. Það var fréttastofa Stöðvar tvö sem upplýsti Sigríði Önnu Þórðardóttur umhverfisráðherra um að verðið á dísellítranum yrði hærra en á bensínlítranum við breytingarnar 1. júlí. Hún telur breytingarnar hvetja til aukinnar notkunar á díselbílum þrátt fyrir að verð dísellítrans verði hærra en bensínlítrans. Sigríður segir þetta mjög jákvæða breytingu sem hafi verið í undirbúningi lengi. Það sem þurfi að skoða í þessu sambandi sé að díselbílar eyði miklu minna en bensínbílar og þar að auki mengi þeir minna þannig að breytingarnar séu að öllu leyti afskaplega jákvæðar. Eins og Sigríður bendir á er díselolía umhverfisvænni en bensín. Aðspurð hvort ekki hefði verið eðlilegra að nota tækifærið til að lækka olíuverðið og hvetja fólk til að nota díselolíu og kaupa díselbíla segir Sigríður að það sé mjög mikil hvatning í sjálfu sér fyrir fólk að kaupa sér díselbíla þegar það sé ljóst að nánast enginn munur sé á bensíni og olíu, en þungaskatturinn hafi verið aflagður. Víða í Evrópu er verð á dísellítra lægra en bensínlítrans þar sem notkun díselbíla hefur verið talin umhverfisvænni en bensínbíla. Sigríður segir að það kerfi sem tekið verði upp þann 1. júlí verði mun einfaldara en gamli þungaskatturinn. Hún segir að þetta nýja kerfi verði mjög til góðs og sé umhverfisvænt. Aðspurð hvort það verði hvatning fyrir fólk að aka díselbíl þegar dísellítrinn er orðinn dýrari en bensínlítrinn segist hún telja að svo verði. Þegar fólk skoði málið ofan í kjölinn og líti til lengri tíma felist tvímælalaust sparnaður í því að aka díselbíl.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×