Innlent

Flutningabíll valt í Námaskarði

Ökumaður slasaðist, en þó ekki alvarlega, þegar stór flutningabíll með tengivagni sem flutti tvo lestaða fiskigáma valt í Námaskarði í Mývatnssveit í gær. Ökumaðurinn var fluttur á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem gert var að sárum hans. Bíllinn var á leið frá Seyðisfirði til Dalvíkur þegar slysið varð í krappri beygju þar sem annar flutningabíll valt nýverið. Beitt var stórvirkum tækjum til að ná bíl, vagni og gámum upp á veginn aftur í gærkvöldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×