Innlent

Þrír eiga hlutabréf

Þingmenn Vinstri-grænna hafa birt lista yfir eignir sínar á heimasíðu sinni. Þrír þeirra eiga hlutabréf; Steingrímur J. Sigfússon formaður, Jón Bjarnason, Norðurlandi vestra, og Ögmundur Jónasson, Reykjavík. Steingrímur átti hlutabréf í átta fyrirtækjum, mest í Hraðfrystistöð Þórshafnar en l íka í Efnalaug Suðrulands, Fjallalambi, Seljalaxi, Íslandsbanka, Landssímanum, Marel og Sparisjóði Þórshafnar og nágrennis. Jón átti hlut í Hólalaxi og Stofnsjóði Kaupfélags Skagfirðinga. Ögmundur átti hlut í Landsbankanum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×