Innlent

Berjast fyrir lausn Arons Pálma

Íslenski stuðningsmannahópurinn sem vann að því að ná Bobby Fischer úr haldi í Japan hefur ákveðið að einhenda sér í næsta baráttumál. Markmið hópsins að þessu sinni er að fá Aron Pálma Ágústsson, 21 árs íslenskan dreng sem var dæmdur til tíu ára refsivistar í Texas í Bandaríkjunum, leystan úr haldi. Í tilkynningu frá hópnum er ekki greint frá því hvernig hann hyggist fá þessu framgengt en þar segir hins vegar að beitt verði bæði hefðbundnum og óhefðbundnum aðferðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×