Innlent

Kjörseðlar enn ósendir

Nokkur hundruð félagar í Samfylkingunni eiga enn eftir að fá kjörseðilinn sinn til að kjósa í formannsslagnum, og verður hann sendur út á morgun, að sögn Flosa Eiríkssonar, formanns kjörstjórnar. Þeir sem telja sig vera skráða flokksfélaga en hafa ekki fengið kjörseðil munu því líklega fá hann sendan með pósti eftir helgi. Kjörstjórn mun funda í dag og fara yfir málið. Þá verður merkt inn á kjörskrá og einhverjar leiðréttingar gerðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×