Innlent

Vilja Vaðlaheiðargöng

Sveitarstjórn Þingeyjasveitar telur áríðandi að Vaðlaheiðargögn komist nú þegar á samgönguáætlun og nauðsynlegt sé að breyta veglínu Norðausturvegar þannig að stytting náist á leiðinni milli Reykjavíkur og Akureyrar. Hefur sveitarstjórnin fjallað ítarlega um frumvarp til samgönguáætlunar sem Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, hefur lagt fram og gerir athugasemdir við að mörg brýn verkefni innan sveitarfélagsins séu ekki á dagskrá á næstunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×