Innlent

Tekinn á 160

Bifhjólamaður gerði tilraun til að stinga lögregluna af þegar hún reyndi að stöðva hann þar sem hann ók á 118 kílómetra hraða eftir Reykjanesbrautinni. Ó k hann á meira en 160 kílometra hraða þegar eltingaleikurinn stóð sem hæst. Eltingaleiknum lauk svo í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði þegar maðurinn datt og var tekinn höndum. Lögreglan segir viðbrögð bifhjólamannsins afar óhyggileg þar sem hann hefði sloppið með 20 þúsund króna sekt hefði hann stöðvað strax. Þess í stað má hann nú búast við hárri sekt og ökuleyfissviptingu auk þess sem hjólið er afar illa farið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×