Innlent

Með 12 lítra af landa og fíkniefni

Tveir piltar, innan við tvítugt, voru gripnir af lögreglu með tólf lítra af landa og fíkniefni á Laugaveginum um klukkan þrjú í nótt. Þessa stundina er verið að yfirheyra mennina en lögregla komst á snoðir um landann og fíkniefnin í bifreið þeirra við hefðbundið eftirlit. Klukkustund síðar voru aðrir tveir piltar teknir með fíkniefni og peninga í miðbænum. Grunur leikur á að í báðum tilfellum hafi piltarnir staðið að sölu vímuefnanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×