Innlent

Nokkuð lífleg nótt

Þó nokkrir bíða nú skýrslutöku hjá lögreglunni í Reykjavík eftir atburði næturinnar. Í tvígang stöðvaði lögregla bíla, annan á Suðurlandsvegi og hinn á Sæbraut, þar sem undir stýri voru réttindalausir ökumenn með fíkniefni í fórum sínum. Við Smiðjustíg greip lögregla mann sem hafði fíkniefni á sér og ætlað þýfi og tveir voru staðnir að því að neyta kannabisefna utandyra í Austurborginni. Talsvert mikið var um ölvað fólk í miðborginni í nótt að sögn lögreglu, án þess þó að til nokkura stórátaka hafi komið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×