Innlent

Fékk bætur vegna samningsrofs

Ferðarskrifstofa Akureyrar var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmd til að greiða fyrrverandi starfsmanni rúmar 6 miljónir króna vegna riftunar á kaupsamningi. Maðurinn var ráðinn til starfa sem framkvæmdastjóri hjá ferðaskrifstofunni árið 2001 en var sagt upp störfum eftir að breytingar urðu á eignarhaldi fyrirtækisins. Hann höfðaði mál þar sem hann krafðist launabóta upp á 6,5 miljónir króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×