Innlent

Afhentu ráðherra áskorun

Stjórn og aðalfundur Ferðafélagsins 4x4, Landsamband sendibílstjóra, Frami, félag leigubílstjóra, Félag hópferðaleyfishafa og bifreiðastjórafélagið Átak afhentu Geir H. Haarde fjármálaráðherra áskorun við Alþingishúsið í dag vegna gjalds sem lagt verður á dísilolíu 1. júní næstkomandi. Félögin stóðu fyrir hópakstri frá Holtagörðum niður í bæ vegna þessa. Áskorunin til stjórnvalda er svohljóðandi: „Við skorum á íslensk stjórnvöld að breyta lögum nr. 87 frá 2004, samþykkt 9. júní sama ár, í þá veru að lítraverð díselolíu verði að minnsta kosti 20 krónum lægra en lítraverð á bensíni eftir gildistöku laganna þann 1. júlí 2005. Við teljum að án þessara breytinga muni markmið laganna ekki nást, sem mun vera að gera díselbifreiðar ákjósanlegan kost, stuðla að fjölgun þeirra og draga þannig úr útblástursmengun bifreiðaflota Íslendinga. Í dag er hlutfall díselbifreiða rétt um 8% af fólksbifreiðum landsmanna. Víða í öðrum löndum er hlutfallið nær 50% og við lítum svo á að íslensk stjórnvöld eigi að stefna á að minnsta kosti svo hátt hlutfall. Við teljum að Íslendingum eigi að vera gert jafn auðvelt, ef ekki auðveldara, og öðrum þjóðum að taka díselbifreiðar í almenna notkun. Verði lögunum ekki breytt verða þær hins vegar óhagkvæmur kostur fyrir almenning eins og meðfylgjandi gögn sína fram á. Þá teljum við vegið harkalega að atvinnubílstjórum þar sem rekstrarkostnaður þeirra sem keyra díselbifreiðar mikið mun stóraukast. Það er með öllu óásættanlegt og mun hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir heilu starfsstéttirnar. Loks teljum við að fyrirsjáanlegt olíugjald hafi verið samþykkt án vitundar um aukin gjöld sem leggjast ofan á krónutölu samkvæmt lögum og skorum á stjórnvöld að afstýra þeim mistökum sem verðlagningin mun verða að óbreyttu.“



Fleiri fréttir

Sjá meira


×