Innlent

53% meðlagsgreiðenda í vanskilum

53 prósent meðlagsgreiðenda eru í vanskilum við Innheimtustofnun sveitarfélaga og skulda samtals yfir 13 milljarða króna í meðlög og dráttarvexti. Þetta kom fram í svari félagsmálaráðherra á Alþingi í dag. Meðlag er nú greitt með liðlega tuttugu þúsund börnum í landinu en með hverju barni er nú greiddar um 16.500 krónur. Meðlagsgreiðendur í landinu eru liðlega tólf þúsund talsins. Þessum hópi gengur hins vegar illa að standa í skilum því 6.500 þeirra eru með yfir 100 þúsund króna meðlag í vanskilum. Árni Magnússon félagsmálaráðherra sagði á þingi í dag að Innheimtustofnun sveitarfélaga hefði metið að ríflega þriðjungur, eða um 4.100 af öllum meðlagsgreiðendum sem væru í vanskilum, væru í verulegum erfiðleikum, t.d. vegna gjaldþrots og árangurslausra fjárnáma. Samtals næmu skuldir þessara meðlagsgreiðenda um 10,3 miljörðum króna en framreiknaðar heildarskuldir allra meðlagsgreiðenda við stofnunina væru nú rúmir 13 milljarðar með dráttarvöxtum. Þessar upplýsingar komu þingmönnum í opna skjöldu. Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði tölurnar svo rosalegar að hún hefði nánast misst málið. Hún sagði að eitthvað yrði að gera, til dæmis að veita þeim sem greiddu meðlag skattaívilnanir. Það ætti ekki að vera viðmið í íslensku samfélagi að meðlagsgreiðendur væru almennt í vanskilum með sín meðlög. Þingmenn sem tóku til máls voru á einu máli um að þetta gæti ekki gengið. Pétur Blöndal, Sjálfstæðisflokki, taldi að gat væri í velferðarkerfinu og Siv Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki, benti á að staða einstæðra mæðra hefði verið skoðuð mikið en meðlagsgreiðendum í vanskilum hefði verið gleymt. Hún teldi að skoða þyrfti mál þeirra betur. Félagsmálaráðherra sagði að eftir því sem hann best vissi væru dæmi þess að menn að greiddu þessar skuldir í áratugi og það væri mjög alvarleg staða. Það væri samt sem áður þannig að þessi skylda hvíldi á herðum meðlagsgreiðenda og undan henni yrði ekki vikist.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×