Innlent

Vill áminna Kínverja

Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, hefur ritað Ólafi Ragnari Grímssyni forseta bréf vegna heimsóknar hans til Kína og lýst áhyggjum sínum af stöðu mannréttindamála í Kína. Grétar vill jafnframt að forsetinn komi þessu á framfæri við kínversk stjórnvöld. Í bréfi sínu lýsir Grétar einkum áhyggjum af því að forystumenn frjálsra stéttarfélaga hafi verið fangelsaðir og launafólki bannað að nota verkföll til að knýja fram kjarabætur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×