Innlent

Alcan hefur ekki fengið leyfi

Hafnarfjarðarbær hefur ekki enn veitt Alcan framkvæmdaleyfi vegna stækkunar álversins í Straumsvík. Talsmaður iðnaðarráðuneytsins sagði í fréttum um helgina að búið væri að láta gera mat á umhverfisáhrifum fyrir stækkun álversins, stjórnendur þess ættu einungis ætti eftir að taka endanlega ákvörðun og bjóða verkið út. Þetta er þó ekki alveg rétt því framkvæmdaleyfið vantar. Lúðvik Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að komið hafi fram nýjar upplýsingar varðandi reglugerðir Evrópusambandsins sem taki gildi í vor. Þær geri það að verkum að kröfur um mengun og útblástur séu harðari. Framvegis gildi því ekki sömu forsendur varðandi svokallað þynningarsvæði, en það er dregið í ákveðinn ramma út frá verksmiðjulóðinni þar sem takmarkaður útblástur er leyfður, en þar má ekki byggja. Stækkunin felur í sér aukna framleiðslugetu um 260 þúsund tonn á ári. Starfsleyfi álversins í dag gerir ráð fyrir 200 þúsund tonna álframleiðslu. Reistir verða tveir tæplega 950 metra langir kerskálar sunnan Reykjanesbrautar, verði stækkunin að veruleika. Önnur helstu mannvirki eru súrálsgeymir, tvær þurrhreinsistöðvar, skautsmiðja, kersmiðja, stækkun steypuskála, spennistöðvar og geymslustöðvar. Lúðvik segist ekki telja að þetta þurfi að tefja málið heldur þvert á móti. Bærinn hafi viljað færa þessi þynningarmörk en þau liggi nú næst svæðinu við gamla Krísuvíkurveginn þar sem byggðin hefur verið að þéttast og gert er ráð fyrir frekari byggð í framtíðinni. Þrátt fyrir nálægð við íbúabyggð mættu sárafáir, eða innan við tuttugu, á kynningarfund þegar áformin voru kynnt almenningi á sínum tíma. Eins og kom fram í gær telur Andrés Svanbjörnsson, yfirverkfræðingur hjá iðnaðarráðuneytinu, að það sé farið að þrengja um raforku á svæðinu og því kæmi ekki á óvart þótt Alcan í Straumsvík myndi fara að hraða ferlinu, enda væru þeirra áform í raun komin lengra en annarra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×