Innlent

Ísland beini kröftum að Taívan

Einar K. Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir skrúðmælgi þá sem Kínverjar hella yfir forseta Íslands um mannréttindamál óskaplega hræsnisfullt tal. Hann vill að Íslendingar beini kröftum sínum og athygli í auknum mæli að Taívan. Einar K. Guðfinnsson gerir heitstrengingar kínverskra ráðamanna um aukin mannréttindi að umtalsefni á heimasíðu sinni. Einar segist ekki vera á móti opinberum heimsóknum eða eflingu samskipta þjóðanna en hann vilji einfaldlega að benda á að það sé mikil hræsni í því fólgin, þegar fyrimenn koma í heimsókn í Kína, að því sé lýst yfir að fram undan sé virðing fyrir mannréttindum og áhugi á að ræða þau mál við stjórnmálamenn og félagasamtök á sama tíma og Kínverjar sýni það í verki þegar þeir koma hingað til lands að þeir hafi ekki sýnt þessum málum áhuga. Einar leggur áherslu á að þótt Íslendingar vilji vera í góðum samskiptum við Kínverja megi ekki gleyma afstöðu þeirra í ýmsum málum sem gangi í berhögg við okkar stefnu og gildi. Á sama tíma og þeir séu með fagurgala við Ólaf Ragnar Grímsson þá beini þeir flugskeytum að friðsömu nágrannaríki, Taívan, og hafi jafnvel í hótunum um að ráðast þar inn. Einar minnir á ferð íslenskra þingmanna til Taívans fyrir skömmu sem kínverski sendiherrann hérlendis gagnrýndi harðlega. „Við skulum ekki gleyma því að Taiwanir eru gamlir og góðir vinir okkar, okkur jafn mikilvæg þjóð í viðskiptum og Kínverjar. Þangað ættum við að beina athygli okkar og kröftum í vaxandi mæli; ekki síst á viðskiptasviðinu," skrifar Einar í pistli sínum. En ef þarf að velja á milli þessara tveggja markaða virðist greinilegt miðað við stærð viðskiptasendinefndarinnar sem nú er í Kína að flestir velji Kínamarkað. Einar segir telja að Íslendingar eigi ekki að láta stilla sér þannig upp að þeir þurfi að velja. Íslendingar eigi að hafa samskipti og viðstkipti við bæði ríki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×