Innlent

Á von á meira lýðræði í Kína

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands telur að Kína muni taka upp lýðræðislega stjórnarhætti innan tíðar. Hann ræddi við nemendur í Peking-háskóla í dag og minnti þá á að valdið væri þeirra. Skömmu áður en að Ólafur Ragnar Grímsson og fylgdarlið gengu á fund forsætisráðherra Kína gekk Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínu, út og fannst íslenskum blaðamönnum brún hans heldur þung. Wen Jiabao var hins vegar kátur. Gamli stjórnmálfræðiprófessorinn ræddi við nemendur Peking-háskóla í morgun, meðal annars um mikilvægi lýðræðis og einkavæðingar fyrir framþróun þjóða. Eftir skoðunarferð um Forboðnu borgina, 300 ára heimili keisara af Ming- og Quing-ættum þaðan sem keisararnir skipuðu þjóð sinni fyrir verkum með alræðisvaldi, sagðist forsetinn hafa trú á að Kínverjar myndu taka upp lýðræðislegt stjórnarfar innan tíðar. Ólafur sagði enn fremur að í samræðum við stúdenta í Peking-háskóla, en stúdentar úr þeim háskóla stóðu fyrir uppreisninni á Torgi hins himneska friðar, hafi hann sagt þeim að valdið væri þeirra og lýðræði væri lykillinn að framförum og mannréttindi væru grundvöllur þeir umbóta sem orðið hefðu í Evrópu. Einn stúdentinn var inntur eftir því hverju hann vildi breyta í landinu og eftir mikla umhugsun sagði hann svo að hann vildi bæta kjör hinna fátæku. Miðað við svarið við næstu spurningu má ætla að hugmyndir um aukið frelsi að vestrænum hætti angri hann að minnsta kosti ekki mikið, en hann var inntur eftir því hvort honum fyndist hann geta gert hvað sem er í lífinu. Hann svaraði því til að hann gæti ekki gert allt því nú stundaði hann nám í læknisfræði og ensku en ef hann yrði látinn stunda rannsóknir í heimspeki og efnafræði væri hann ekki viss um að hann gæti það.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×