Innlent

Tveir samningar undirritaðir

Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, hefur undirritað tvo samstarfssamninga á sviði umhverfismála við kínversk yfirvöld. Samningarnir eru á sviði jarðskjálftavár og umhverfisverndar og koma í kjölfar tveggja funda sem Sigríður átti í Kína. Stefnt er að því að þróa samvinnu og miðla þekkingu á sviði jarðskjálfta, eldfjalla, jarðeðlisfræði, jarðskjálftaverkfræði og jarðskjálftaforvarna. Einnig er stefnt að því að auka tæknilegt samstarf á svið umhverfismála.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×